Þá er liðið okkar komið aftur heim og stóð sig frábærlega í Finnlandi á laugardaginn! Fyrst fóru þær inn sem lið og söfnuðu stigum sem lið fyrir liðakeppnina og svo fóru þær inn í blönduðum hópum og söfnuðu sér inn stigum sem einstaklingar. Í fyrsta hópnum var Theodóra sem sýndi Flatcoated retriever, í öðrum hópnum var Jóhanna Líf með enskan springer spaniel, í þriðja hópnum var Erna Sigríður með Tibetan spaniel og í fjórða og seinasta hópnum var Hilda Björk með Irish soft coated wheaten terrier. Eftir forkeppnina var farið inn í stóra hringinn. Þar fóru öll liðin saman inn og voru liðin valin í verðlaunasæti. Því miður varð liðið okkar ekki í sæti að þessu sinni. Síðan voru úrslit í einstaklingskeppninni en þar komust Erna og Theodóra í 10 sýnenda úrslit og endaði Erna daginn með að hreppa 3. sætið! Óskum við stelpunum til hamingju með árangurinn og viljum þakka Auði Sif Sigurgeirsdóttur fyrir að vera þeim frábær stuðningur og þjálfari!
Nú þegar sýningarárið 2013 er á enda liggja fyrir lokastig og því listi yfir stigahæstu sýnendur ársins 2013.
Stigahæsti sýnandi í yngri flokki er Sigrún Sandra Valdimarsdóttir sem endaði með 130 stig! Óskum Sigrúnu innilega til hamingju með frábæran árangur. Stigahæstu sýnendurnir í eldri flokki eru eftirfarandi, ein þær mynda lið Íslands á Nordic Winner en þær halda til Helsinki 13. desember nk. og munu keppa 14. desember. 1.sæti - Theodóra Róbertsdóttir með 120 stig - Fulltrúi Íslands á Crufts 2014 + Nordic Winner 2. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með 110 stig - Fulltrúi Íslands á Heimssýningunni 2014 + NW 3. sæti - Erna Sigríður Ómarsdóttir með 100 stig - Fulltrúi Íslands á Evrópusýningunni 2014 + NW 4. sæti - Jóhanna Líf Halldórsdóttir með 50 stig - Nordic Winner Óskum þeim innilega til hamingju og óskum þeim góðs gengis á keppnunum úti! Unglingadeildin stóð fyrir æfingakeppni þann 22. september sl. Þetta var í þriðja skiptið sem deildin stóð fyrir svona keppni og að þessu sinni dæmdi Auður Sif Sigurgeirsdóttir. 20 keppendur voru skráðir og var jafnt í flokkum.
Úrslit voru eftir farandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Glódís Rún Sigurðardóttir með Australian shepherd 2. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með Chow chow 3. sæti - Hrafnhildur Hólm Guðnadóttir með Welsh corgi pembroke 4. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með Labrador Eldri flokkur: 1. sæti - Jóhanna Líf Halldórsdóttir með English springer spaniel 2. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með Miniature schnauzer 3. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með Standard schnauzer 4. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með Siberian husky Ps. þessi keppni gildir EKKI til stiga. Keppni ungra sýnenda á septembersýningu HRFÍ var haldin 6. september sl. í Klettagörðum 6 og voru 22 ungir sýnendur skráðir til keppni. Dómari að þessu sinni var Frank Kane frá Bretlandi.
Yngri flokkur: 1. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með Chowchow - 40 stig 2. sæti - Sigrún Sandra Valdimarsdóttir með Papillon - 30 stig 3. sæti - Glódís Rún Sigurðardóttir með Australian Shepherd - 20 stig 4. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með Labrador - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Erna Sigríður Ómarsdóttir með Tibetan Spaniel - 40 stig 2. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með Standard Schnauzer - 30 stig 3. sæti - Theodóra Róbertsdóttir með German Wirehaired Pointer - 20 stig 4. sæti - Birta Dröfn Valsdóttir með Papillon - 10 stig |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|